Doktorsvörn í Norrænni trú – Ingunn Ásdísardóttir

Doktorsvörn í Norrænni trú – Ingunn Ásdísardóttir

School of Social Sciences › Faculty of Sociology, Anthropology and Folkloristics

Hvenær
11. May 2018, 14:00 – 16:00
Hvar
Aðalbygging Hátíðarsalur
Nánar
Aðgangur ókeypis

Heiti ritgerðar

Jötnar í blíðu og stríðu: Jötnar í fornnorrænni goðafræði. Ímynd þeirra og hlutverk (e. JǪTNAR IN WAR AND PEACE: The Jǫtnar in Old Norse Mythology: Their Nature and Function)

Doktorsefni: Ingunn Ásdísardóttir

Heiti ritgerðar: Jötnar í blíðu og stríðu: Jötnar í fornnorrænni goðafræði. Ímynd þeirra og hlutverk (e. JǪTNAR IN WAR AND PEACE: The Jǫtnar in Old Norse Mythology: Their Nature and Function)

Andmælendur: Dr. Thomas DuBois prófessor við Háskólann í Wisconsin – Madison og dr. Jens Peter Schjødt prófessor við Háskólann í Árósum.

Leiðbeinandi: Dr. Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Aðrir í doktorsnefnd: Dr. John Lindow prófessor emeritus í fornnorrænum fræðum við Kaliforníuháskóla, Berkeley og dr. Ármann Jakobsson prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.

Doktorsvörninni stýrir: Guðbjörg Vilhjálmsdóttir prófessor í náms- starfsráðgjöf og deildarforseti Félags- og mannvísindadeildar

Ágrip af rannsókn:

Markmið doktorsrannsóknarinnar var að skoða þær verur sem nefnast jötnar í heimildum um fornnorrænar goðsagnir, óháð eldri fræðilegum rannsóknum eins og kostur er, þar sem svo til allar eldri rannsóknir taka mjög sterkt mið af því sjónarhorni sem ríkjandi er í heimildunum, en það byggist á því viðhorfi að guðir og menn séu „við“ en jötnar eru skilgreindir sem „hinir“, sem andstæðingar, jafnvel óvinir. Þetta er einkum áberandi í goðsögulegum verkum Snorra Sturlusonar, Gylfaginningu og Skáldskaparmálum. Í tilraun til að losa jötna undan þessu sjónarhorni og komast nær ímynd þeirra og því hlutverki sem þeir gegna í fornnorrænum goðsögnum eru birtingarmyndir þeirra í eddukvæðum og dróttkvæðum skoðaðar á hlutlausum forsendum og allar vísanir til þeirra í þessum goðsagnaheimildum greindar á nýjan leik án áhrifa frá fyrri rannsóknum.
Helstu niðurstöður þessarar greiningar eru þær að mörg kvæðanna virðast geyma sérkennilega jákvæða, jafnvel virðulega, ímynd jötna þar sem þeir birtast allt að því sem jafningjar goðanna (í sumum tilfellum goðunum fremri og jafnvel æðri), jafnir þeim að stærð og líkamsburðum. Þeir standa framarlega í menningarlegu tilliti og hafa aðgang að auðlindum sem goðin ágirnast. Þeir búa einnig yfir sköpunarmætti og ráða yfir kunnáttu í fjölkynngi og fornum fræðum en hvoru tveggja virðist hafa verið ákaflega eftirsótt og mikilsmetin þekking.