Doktorsvörn í fornleifafræði: Kevin Martin

Doktorsvörn í fornleifafræði: Kevin Martin

School of Humanities › Faculty of Philosophy, History and Archaeology

Hvenær
15. March 2022, 13:00 – 15:00
Hvar
Aðalbygging Hátíðasalur
Nánar
Aðgangur ókeypis

Þriðjudaginn 15. mars 2022 fer fram doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Þá ver Kevin Martin doktorsritgerð sína í fornleifafræði, Uncovering the Archaeology of the Danish Trade Monopoly in Iceland (1602-1787). Merchant Ships and Trade Ports. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00. (Hægt verður að fylgjast með vörninni í streymi með því að smella hér).

Andmælendur við vörnina verða dr. Mark Gardiner, prófessor við Háskólann í Lincoln, og dr. Niklas Eriksson, dósent við Háskólann í Stokkhólmi.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Gavins Lucas, prófessors við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Natascha Mehler, prófessor við Háskólann í Tübingen, og dr. Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður.

Steinunn Kristjánsdóttir, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Í ritgerð Kevins er fornleifafræði einokunartímabilsins (1602-1787) rannsökuð með athugun á tveimur þáttum efnislegra innviða verslunar, þ.e. rannsókn á kaupskipum og verslunarstöðum. Tvær tilviksrannsóknir -á flaki skipsins Melckmeyt og á leifum torfbyggingar á Arnarstapa-  mynda grunn fyrir fornleifafræðilegar rannsóknir á verslun á þessu tímabili, sem brúar bilið milli hinna oft aðskildu sviða, neðansjávarfornleifafræði og yfirborðsfornleifafræði. Rannsóknin dregur fram mikilvæga og tengda þætti efnislegra innviða einokunarverslunarinnar. Með þá að vopni er hægt að varpa upp nærmyndum af versluninni og daglegu lífi áhafnanna jafnt um borð í kaupskipunum sem og á verslunarstöðunum.

Um doktorsnefnið

Kevin Martin lauk BA-prófi í fornleifafræði og sagnfræði frá University College í Cork og M.Phil-prófi í miðaldafornleifafræði frá Háskólanum í Glasgow. Hann býr á Íslandi og starfar sem sjávarfornleifafræðingur.