Doktorsvörn í næringarfræði – Áróra Rós Ingadóttir

Doktorsvörn í næringarfræði – Áróra Rós Ingadóttir

Heilbrigðisvísindasvið › Matvæla- og næringafræðideild

Hvenær
12. nóvember 2018, 09:00 – 12:00
Hvar
Aðalbygging Hátíðarsalur
Nánar
Aðgangur ókeypis

Heiti ritgerðar

Skimun á næringarástandi og næringarmeðferð sjúklinga með langvinna lungnateppu (LLT). Nutritional risk screening and nutrition therapy for patients with chronic obstructive pulmonary disease (COPD)

Mánudaginn 12. nóvember ver Áróra Rós Ingadóttir doktorsritgerð sína í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Skimun á næringarástandi og næringarmeðferð sjúklinga með langvinna lungnateppu (LLT). Nutritional risk screening and nutrition therapy for patients with chronic obstructive pulmonary disease (COPD).

 Andmælendur eru dr. Annemie Schols, prófessor í næringu og efnaskiptum sjúklinga við læknadeild Maastricht-háskóla í Hollandi, og dr. Eyþór Hreinn Björnsson, yfirlæknir lungnasviðs á Reykjalundi.

Umsjónarkennarar og leiðbeinendur voru dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild, og dr. Anne Marie Beck, dósent við Copenhagen University College í Danmörku. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd dr. Þórarinn Gíslason, prófessor við Læknadeild, og dr. Christine Baldwin, rannsóknasérfæðingur við King‘s College í London.

Bryndís Eva Birgisdóttir, prófessor og forseti Matvæla- og næringarfræðideildar,, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 9:00.

Ágrip af rannsókn

Markmið doktorsverkefnisins var að auka þekkingu á skimun á næringarástandi og næringarmeðferð sjúklinga með langvinna lungnateppu (LLT). Ritgerðin byggir á fjórum vísindagreinum, þar af hafa tvær birst í alþjóðlegum vísindatímaritum, ein er í ritrýni og sú fjórða í lokahandriti. Greinarnar  eru byggðar á gögnum um sjúklinga með LLT sem lögðust inn á lungadeild Landspítala á tímabilinu september 2014 til desember 2016. Allir þátttakendur voru skimaðir fyrir hættu á vannæringu (n=492). Líkamssamsetning var metin með leiðnimælingu (Bioelectrical impedance analyser), lungnastarfsemi með öndunarmælingu (Spirometry) og orku- og próteinneysla í innlögn með gildismetnu skráningarblaði (grein I-IV). Sjúklingar með sterkar líkur á vannæringu samkvæmt skimun (≥4 stig) tóku þátt í íhlutunarrannsókn (grein III). Þátttakendum var slembidreift í tvo hópa, næringardrykkjahóp (hefðbundin næringarmeðferð í dag) og millibitahóp sem fékk orku- og próteinríka millibita (ný aðferð). Báðir hópar fengu 600 kkal á dag aukalega við hefðbundið fæði í 12 mánuði. Sjúklingar í lítilli eða meðaláhættu á vannæringu (0-3 stig) tóku þátt í víxlunarrannsókn (grein IV). Þar voru áhrif næringardrykkja og millibita, fastandi eða eftir morgunverð, metin með mælingum á blóðsykri, fastandi og í kjölfarið reglulega í tvær klukkustundir eftir neyslu. Niðurstöðurnar benda til þess að auka mætti fjölbreytileika í næringarmeðferð vannærðra sjúklinga með því að nota orku- og próteinríka millibita jafnhliða hefðbundnum næringardrykkjum. Rannsaka þarf betur mismunandi áhrif næringardrykkja og millibita á blóðsykur sjúklinga með LLT, sem og klíníska þýðingu.

Um doktorsefnið

Áróra Rós Ingadóttir er fædd á Selfossi árið 1982. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi árið 2004, BS-prófi frá Matvæla- og næringarfræðadeild Háskóla Íslands árið 2012 og MS-prófi frá sömu deild árið 2014. Meðfram doktorsnáminu hefur hún starfað sem klínískur næringarfræðingur á Næringarstofu Landspítala og sem stundakennari við Háskóla Íslands. Foreldrar Áróru eru Dýrleif Tómasdóttir og Ingi Rafn Hauksson. Áróra er gift Þórði Þrastarsyni. Þau búa í Mosfellsbæ ásamt börnum sínum, Tristan og Thelmu Rós.